Vegagerðin óskar eftir tilboðum í efnisvinnslu á Suðursvæði á árinu 2018.
Helstu magntölur:
- Efra burðarlag 0/22 mm 13.000 m3
- Klæðingarefni 8/11 mm 11.000 m3
- Klæðingarefni 11/16 mm 4.500 m3
- Hörpun á úrharpi 13.000 m3
- Malarslitlag 10.000 m3
Verki skal að fullu lokið 1.október 2018.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka)
frá og með mánudeginum 29. janúar 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 13.febrúar 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.