Á fundi frístundaráðs Akureyrarbæjar 25. janúar var samþykkt að mynda þriggja manna vinnuhóp til þess að hefja kostnaðar- og þarfagreiningu á 50 metra innisundlaug.
Gert er ráð fyrir greiningunni í starfsáætlun ráðsins fyrir árið 2018. Ráðið felur deildarstjóra íþróttamála að leiða vinnuna. Samþykkt var að skipa Arnar Þór Jóhannesson sem fulltrúa ráðsins í vinnuhópnum.
Í tilkynningu frá Sundfélaginu Óðni er ákvörðun frístundaráðs fagnað. Þar segir að slíkt mannvirki myndi hafa gríðarmikla þýðingu fyrir starfsemi félagsins sem og grunnskóla bæjarins og almenning.
„Við berum því von í brjósti að iðkendur félagsins þurfi ekki að æfa mörg ár í viðbót í snjókomu og frosti,“ segir í tilkynningunni.
Heimild: Kaffid.is