Home Fréttir Í fréttum Nágrannar á móti nýbyggingu í stað veggjatítluhúss

Nágrannar á móti nýbyggingu í stað veggjatítluhúss

232
0
Eigendur Austurgötu 36 berjast enn fyrir því að fá að reisa nýtt og stærra hús í stað þess sem ónýtt er. Mynd: Fréttablaðið/Ernir

Þrjár athugasemdir bárust um nýtt deiliskipulag vegna Austurgötu 36 í Hafnarfirði. Húsið var dæmt ónýtt í apríl 2017 vegna veggjatítlu og myglu. Nágrannar óttast skuggavarp og eignatjón.

<>

Fimm manna fjölskylda flúði húsið og heldur til í leiguhúsnæði. Líkt og Fréttablaðið hefur fjallað um hafa síðustu mánuðir fjölskyldunnar farið í að berjast fyrir því að fá að reisa nýtt og stærra steinhús á lóðinni í stað hins ónýta bárujárnsklædda timburhúss.

Í október sagði Anna Gyða Pétursdóttir, eigandi hússins, í Fréttablaðinu að þau litu svo á að kröfur þeirra væru raunhæfar og að um væri að ræða steinhús í gömlum stíl sem passi vel inn í virðulega götumyndina.

„Okkur hefur fundist að menn vilji bara annað lítið bárujárnshús þarna, sem væri bara galið.“

Það viðhorf kemur einmitt fram í athugasemd Björns Péturssonar, bæjarminjavarðar Hafnarfjarðar, við breytingarnar sem lagðar voru fram á fundi skipulags- og bygg­ingar­ráðs bæjarins á þriðjudag ásamt athugasemdum tveggja nágranna.

Þar leggur Björn til að leitað verði allra leiða til að vernda hið ónýta hús og gera það upp í upprunalegri mynd. Ef svo „ólíklega vill til“ að það sé ekki gerlegt verði gerð krafa um að sams konar bárujárnsklætt timburhús verði byggt svo það raski ekki götumyndinni.

Íbúi í næsta húsi við Austurgötu 36 leggst gegn nýbyggingunni þar sem hún muni auka skuggavarp á lóð hans og að hún stríði þannig gegn hagsmunum hans.

Nágranni í Mjóasundi 3 bendir á að eign hans sé friðuð og kjallari hlaðinn úr grjóti án styrkingar. Fyrirhuguð stækkun og dýpkun á grunni Austurgötu 36 muni því líklega valda tjóni á hans eign.

Þá mælist hann einnig til að beðið verði með frekari ákvarðanir varðandi hið nýja hús þar til málaferli núverandi eigenda Austurgötu 36 við fyrri eigendur eru til lykta leidd.

Heimild: Visir.is