Home Fréttir Í fréttum 17.01.2018 Ísafjörður – Mávagarður – viðlegustöpull 2017

17.01.2018 Ísafjörður – Mávagarður – viðlegustöpull 2017

283
0

Hafnir Ísafjarðarbæjar óska eftir tilboðum í ofangreint verk.

<>

Helstu verkþættir og magntölur eru:

Á Ísafirði:

  • Reka niður 28 stk af tvöföldum stálþilsplötum og ganga frá stögum.
  • Jarðvinna, upptekt á núverandi garði, fylling fyrir innan þil og grjótröðun við enda þils.
  • Steypa um 40 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

Á Flateyri:

  • Djúpþjöppun við hafnarkantinn á Flateyri.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2018.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á skrifstofu Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu, 400 Ísafjörður frá og með miðvikudeginum 3. janúar 2018. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 17. janúar 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag