Home Fréttir Í fréttum Risa verslunarmiðstöð Kaupfélags Suðurnesja í biðstöðu

Risa verslunarmiðstöð Kaupfélags Suðurnesja í biðstöðu

71
0
Rósasel

Tafir við skipulagsvinnu hjá Skipulagsstofnun og umhverfis-og auðlindaráðuneytinu hafa orðið til þess að áform Kaupfélags Suðurnesja um að reisa verslunar- og þjónustumiðstöð skammt frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar hafa verið í biðstöðu síðan fyrri part árs 2016. Svæðið sem um ræðir er um 20 þúsund fermetrar að stærð og er við Rósaselshringtorg sem er nærri flugstöðinni.

<>
Rósasel

Frá þessu er greint á vef RÚV, en þar kemur fram að vinnu Skipulagsstofnunnar og ráðuneytisins sé nú lokið og málið í höndum sveitarfélagsins Garðs, sem geti nú hafið vinnu við nauðsinlegar deiliskipulagsbreytingar en svæðið er í dag skilgreint sem athafnasvæði, sem breyta þarf yfir í verslunar-og þjónustusvæði.

Í frétt RÚV er rætt við Skúla Skúlason, stjórnarformann Kaupfélags Suðurnesja sem telur að aðalskipulag sveitarfélagsins Garðs verði klárt í febrúar og að í framhaldinu verði hægt að vinna málið áfram af meiri alvöru.

Nokkur fyrirtæki hafa þegar lýst yfir áhuga á að hefja rekstur í verslunarkjarnanum. Nettó, sem er í eigu Samkaupa, dótturfélags Kaupfélags Suðurnesja, myndi opna matvöruverslun, Olís reka þar bensínstöð og Subway, Pizza Hut, KFC, Taco Bell og Grill 66 veitingastaði.

Heimild: Sudurnes.net