Tekjur Ríkisútvarpsins af sölu byggingarréttar við útvarpshúsið í Efstaleiti munu nema um 2,2 milljörðum króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu. Þar segir að upphæðin sé um 600 milljónum króna hærri en áætlun Ríksúvarpsins gerði ráð fyrir var þegar tilkynnt var um áformin í upphafi.
Ríkisútvarpið seldi bygginarréttinn á lóðinni fyrir rétt rúmum tveimur árum í þeim tilgangi að lækka skuldir.
Heimild: Mbl.is