Búið er að taka frá átta lúxusíbúðir í nýju fjölbýlishúsi á Tryggvagötu þremur dögum eftir að sala hófst á laugardaginn var. Söluverðið hleypur á hundruðum milljóna króna.
Verð á auglýstum íbúðum er frá 43,5 til 143 milljónir króna. Þrjár kosta 140 milljónir eða meira, að því er fram kemur í umfjöllun um sölu lúxusíbúða í Morgunblaðinu í dag.
Samkvæmt fasteignavef mbl.is er meðalverð 20 íbúða í nýja húsinu um 75 milljónir og meðalstærðin um 95 fermetrar. Meðalverð á fermetra er því tæplega 790 þúsund krónur.
Heimild: Mbl.is