Bjarg íbúðafélag, sem stofnað var af ASÍ og BSRB, ætlar að byggja 75 íbúðir á Akureyri á næstu þremur árum í samstarfi við bæjarfélagið. Bæjarstjórinn á Akureyri segir þetta góða viðbót við húsnæðismarkaðinn og bærinn komi að málinu í því skyni að bæta aðgengi tekjulægri hópa að öruggu leiguhúsnæði.
Bjarg er húsnæðissjálfseignastofnun, rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að hagkvæmu, öruggu og vönduðu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða svokölluð leiguheimili að danskri fyrirmynd og hafa samningar þegar verið gerðir um uppbyggingu í Reykjavík og Hafnarfirði.
Viljayfirlýsing um samstarf Akureyrarbæjar og Bjargs íbúðafélags var undirrituð í bæjarstjórnarsalnum í dag. Það felur í sér að bærinn veiti 12% stofnframlag til byggingar 75 nýrra íbúða á vegum félagsins á Akureyri á næstu þremur árum, sem sé gert í ljósi þeirra brýnu verkefna sem blasi við í húsnæðismálum. Akureyrarbær hefur nú þegar gefið vilyrði um úthlutun á lóð að Guðmannshaga 2 í nýjasta hverfi bæjarins, Hagahverfi, fyrir a.m.k. 18 íbúðir og fram til ársins 2020 verður úthlutað lóðum fyrir samtals 75 leiguíbúðir í bænum.
Í tilkynningu segir að við uppbyggingu skuli horft „til atriða eins og félagslegrar blöndunar, yfirbragðs, íbúalýðræðis og hönnunar og skal það útfært nánar í samvinnu aðila.“
Akureyrarkaupstaður gerði það að skilyrði fyrir veitingu stofnframlags til verkefnisins að fjölskyldusvið Akureyrarbæjar hefði að jafnaði ráðstöfunarrétt að 20% íbúða, samkvæmt sérstöku samkomulagi sem aðilar gera um hvert verkefni.
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, segir að þetta framtak íbúðafélagsins Bjargs á Akureyri sé góð viðbót við húsnæðismarkaðinn og að Akureyrarbær komi beint að þessu góða máli í því skyni að bæta aðgengi tekjulægri hópa að öruggu leiguhúsnæði.
„Framundan er krefjandi verkefni sem Bjarg mun leysa af metnaði og í samvinnu við heimamenn,“ segir Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjargs, og fagnar samstarfinu við Akureyrarbæ.
Elín Björg Jónsdóttir, stjórnarmaður í Bjargi og formaður BSRB, sagði við þetta tækifæri gríðarlega mikilvægt að fólk hefði öruggt leiguhúsnæði á verði sem það réði við.
Gylfi Arnbjörnsson, formaður stjórnar Bjargs og forseti Alþýðusambands Íslands, sagði að Bjarg hygði á starfsemi um allt land og stefnan væri sú að það ferli sem nú væri að hefjast myndi standa lengi. „Við erum að hefja langt og farsælt samstarf.“
Gylfi sagði sveitarfélög sinna þeim sem væru í mestum vanda en síðan verkamannabústakerfið var lagt niður hefði ákveðinn hópur í raun verið afskiptur; það fólk gæti ekki keypt sér húsnæði því það fengi ekki lánsheimildir í fjármálastofnunum og væri þess vegna illa statt. „Það er efni þessa samkomulags að við erum að staðsetja okkur þarna á milli; við viljum passa að enginn lendi á milli skips og bryggju,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson.
Samkomulagið undirrituðu Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs, Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri, Elín Björg Jónsdóttir, stjórnarmaður í Bjargi og formaður BSRB, og Gylfi Arnbjörnsson, stjórnarformaður Bjargs og forseti ASÍ.
Heimild: Mbl.is