Í fjórða þætti Atvinnupúlsins í Skagafirði, sem frumsýndur var á N4 , var m.a. rætt við Tryggva Þór Haraldsson forstjóra RAKIK. Hann segir að allt að einum og hálfum milljarði króna verði varið í verkefni í Skagafirði næstu misserin.
Uppbygging RARIK, sem verið hefur í undirbúningi í nokkurn tíma, miðast fyrst og fremst að því að tryggja raforkuöryggi í Skagafirði og að raforkunotkun geti tvöfaldast á svæðinu.
Landsnet áformar að leggja 66 kílóvolta jarðstreng frá Varmahlíð í nýja aðveitustöð á Sauðárkróki og verður hún staðsett í iðnaðarhverfinu syðst í bænum.
Sauðárkrókur hefur hingað til verið tengdur við eina línu frá Varmahlíð og hefur rafmagnsöryggi ekki verið upp á það besta. Rafmagnsnotkun staðarins er upp á 4-5 megavött en í náinni framtíð er áætlað að hún muni tvöfaldast.
Heimild: Feykir.is