Home Fréttir Útboð 07.05.2015 Þeistareykjavirkjun – Eftirlitsþjónusta með byggingum og veitum

07.05.2015 Þeistareykjavirkjun – Eftirlitsþjónusta með byggingum og veitum

76
0
Mynd: Landsvirkjun

Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í eftirlitsþjónustu vegna framkvæmda við fyrirhugaða Þeistareykjavirkjun í Þingeyjarsveit samkvæmt útboðsgögnum nr. 20189.

<>

Verkefnið felst í  eftirliti með:

1) Verksamningi   fyrir „ Þeistareykjavirkjun – Byggingar“  samkvæmt útboðsgögnum 20150, verkið felst í byggingu stöðvarhúss fyrir tvær 45 MWe vélasamstæður ásamt öllum frágangi þess.

Áætlað er að framkvæmdir við stöðvarhús hefjist í maí  2015 og verklok eru í lok nóvember 2016.

2) Verksamningi „ Þeistareykjavirkjun – Veitur „  samkvæmt útboðsgögnum 20151 þ.e. með bygginu veitukerfis Þeistareykavirkjunar fyrir eina 45 MWe  vélasamstæðu. Verkið skiptist í uppsetningu lagna, ofanjarðar og niðurgrafinna, byggingu lokahúsa auk smærri skýla.

Áætlað er að framkvæmdir við veitur hefjist í maí 2015 og verklok eru í júlí 2017.

Gert er ráð fyrir að vinna við eftirlit geti hafist  í júní 2015 og ljúki í júlí 2017.

Kynningarfundur um verkið verður 14. apríl kl. 10.00 hjá Landsvirkjun  á Háaleitisbraut 68.

Tilboðum skal skila til Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68,  fyrir klukkan 12:00 fimmtudaginn
7. maí 2015 þar sem þau verða opnuð kl. 14:00 sama dag og lesin upp að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.