Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir við byggingu sjúkrahótelsins hafa dregist verulega

Framkvæmdir við byggingu sjúkrahótelsins hafa dregist verulega

95
0
Framkvæmdir við sjúkrahótelið við Hringbraut hafa dregist verulega eins og ákvörðunin um hvert rekstrarform þess verður. Mynd: fréttablaðið/Ernir

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra ætlar að tilkynna á næstu dögum hvert rekstrarform nýs sjúkra- og sjúklingahótels á lóð Landspítalans við Hringbraut verður. Framkvæmdir við byggingu hótelsins hafa dregist verulega.

<>

Endanleg ákvörðun um hvort Landspítalinn reki hótelið, það verði boðið út til einkaaðila eða rekstrarformið verði blanda af hvoru tveggja, hefur legið á borði heilbrigðisráðherra um nokkra hríð.

Fyrst hjá Kristjáni Þór Júlíussyni og nú Óttari Proppé. Þótt aðeins vika sé í kosningar og starfsstjórn í landinu segir Sigrún Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, að ákvörðunartakan verði ekki látin ganga til næsta ráðherra. Vinna við málið sé á lokametrunum.
„Gert er ráð fyrir að ákvörðun liggi fyrir á næstu dögum,“ segir Sigrún.


Hinn 16. desember 2015 skipaði Kristján Þór starfshóp sem falið var að skoða mismunandi rekstrarform sjúkrahótelsins. Starfshópurinn skilaði af sér í júlí í fyrra þar sem þrjár leiðir komu helst til greina en skiptar skoðanir voru innan starfshópsins þar sem skilað var nokkrum sérálitum.


Kristján Þór eftirlét eftirmanni sínum að taka ákvörðunina og hefur málið verið í vinnslu innan velferðarráðuneytisins síðan.

Upphaflega átti framkvæmdum að ljúka í júní síðastliðnum. Það stóðst ekki og tilkynnt var að verklok hefðu dregist fram á haust. Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Nýs Landspítala ohf., segir að samkvæmt nýrri verkáætlun verktakans sé gert ráð fyrir lokaskilum 15. desember.

Standist það mun afhending hins nýja fjögur þúsund fermetra sjúkrahótels hafa dregist um nærri hálft ár. En þessi dráttur þýðir einnig að ekki hefur legið eins mikið á að ákveða rekstrarformið, sem ljóst er að kann að vera umdeild ákvörðun, hvernig sem fer. Óttarr Proppé hyggst hins vegar taka þá ákvörðun fyrir næstu ríkisstjórn.

Heimild: Visir.is