Tilboð voru opnuð 10. október 2017. Tilboð við opnun eru eftirfarandi:
Nr. | Bjóðandi | Tilboð við opnun | Hlutfall af kostnaðaráætlun |
---|---|---|---|
1. | Sérverk ehf. | kr. 431.615.295.- | 111,99% |
2. | Mannverk ehf. | kr. 561.416.911.- | 145,66% |
3. | Eykt ehf. | kr. 783.775.321.- | 203,36% |
Fleiri tilboð bárust ekki.
Kostnaðaráætlun kr. 385.417.343.-
Tilboð eru í yfirferð hjá FSR.
Verkið felst í að endurinnrétta kjallara, 1., 2., og 3. hæð í austurálmu Arnarhvols.
Þetta er síðasti og jafnframt stærsti áfanginn í innanhússbreytingum á Arnarhvoli. Byrjað var á utanhússviðgerðum og síðan tóku við tveir áfangar í innanhússbreytingum og endurbótum á árunum 2013-2016.