Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyja í vikunni var greint frá því að þann 25. september hafi verið opnuð tilboð í utanhússklæðningu á sorpflokkunarstöð við Eldfellsveg.
Eitt tilboð barst frá Landsstólpa ehf og Skipalyftunni ehf. Tilboðið hljóðaði upp á 17.992.177 kr. Verktími er febrúar til maí 2018.
Ráðið fól framkvæmdastjóra að ganga til samninga á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs, segir í bókun framkvæmda- og hafnarráðs.
Heimild: Eyjar.net