Hafnarstjórn Snæfellsbæjar óskar eftir tilboði í framkvæmdir við Norðurkant í Rifshöfn.
Helstu verkþættir eru:
- Steypa upp rafbúnaðarhús og þrjá stöpla undir ljósamöstur
- Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn
- Leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum
- Leggja niðurfallslögn og koma fyrir niðurföllum
- Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna síðan undir steypu.
- Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 4.300 m²
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. maí 2018.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á hafnarskrifstofu Snæfellsbæjar, Norðurtanga 5 í Ólafsvík, frá og með þriðjudeginum 3.október 2017. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. október 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.