Home Fréttir Í fréttum 03.10.2017 Borgarholtsskóli og Fjölbrautaskólinn við Ármúla – þjónustusamningur um málun

03.10.2017 Borgarholtsskóli og Fjölbrautaskólinn við Ármúla – þjónustusamningur um málun

234
0
Fjölbrautaskólinn við Ármúla

Ríkiseignir óska eftir málurum til að taka þátt í örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald málningar í Borgarholtsskóla og Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Verkefnið felst í almennu viðhaldi á málningu, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

<>

Gefa skal verð í 900 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 70 ferðir vegna efnisöflunar.

Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 3. október 2017 kl. 14.00.