Lengsta brú landsins, Skeiðarárbrú, bíður nú örlaga sinna eftir að hún var leyst af hólmi með nýrri Morsárbrú. Sú er innan við einn tíundi af lengd hinnar. Fjallað var um Skeiðarárbrú í fréttum Stöðvar 2 og rætt við Reyni Gunnarsson, rekstrarstjóra Vegagerðarinnar á Höfn, og Benedikt Ólason, verkefnisstjóra hjá Héraðsverki.
Skeiðarárbrú er um 900 metra löng en í samanburðinum er nýjan brúin yfir Morsá óttaleg písl við hliðina, aðeins 68 metra löng. Eftir að Skeiðará breytti um farveg sumarið 2009 og flutti sig yfir í Gígjukvísl rann aðeins Morsá undir þetta mikla mannvirki. Því dugði minni brú, sem brúarflokkur Vegagerðarinnar lauk við í fyrrahaust, en Héraðsverk á Egilsstöðum lagði svo vegina að henni í sumar.
Gamla Skeiðarárbrúin var sjálf orðin farartálmi, – einbreið með fimm útskotum. Starfsmenn Héraðsverks urðu reglulega vitni að umferðarhnútum á brúnni í sumar. Benedikt lýsir því að stundum hafi legið við handalögmálum bílstjóra.
„Þrjátíu bílar stíflaðir uppi á henni og allt á öðrum endanum. Stundum hefur mann langað að heyra hvað menn segja. Það hafa verið ljótu lætin stundum.“
Reynir hjá Vegagerðinni á Höfn segir gott að losna við Skeiðarárbrú. Hún hafi verið orðin mjög léleg, einkum timburverkið í henni, og komið að miklu viðhaldi.
Vígsla Skeiðarárbrúar árið 1974 er einn stærsti viðburðurinn í samgöngusögu Íslands en með henni opnaðist hringvegurinn. Brúin mátti reglulega þola Skeiðarárhlaup og stóðst þau öll þar til í nóvember árið 1996 þegar hún rofnaði eftir Gjálpargosið í Vatnajökli. Hún var svo opnuð á ný eftir viðgerð.
Skeiðarárbrú gæti auðvitað staðið áfram um langa framtíð og kannski fengið nýtt hlutverk sem risastór minnisvarði um loftlagsbreytingar og þannig haldið stöðu sinni sem lengsta brú á Íslandi. Annars myndi krúnan færast yfir til Borgarfjarðarbrúar.
„Það er ekki endanlega búið að ákveða hvað verður gert við hana. Menn eru svona að spá í hvað verður gert,“ segir Reynir.
Benedikt hjá Héraðsverki lýsir sinni skoðun með vísu:
„Löggst í dvala, löng ein brú,
sú lengsta í þessu landi.
Hún er eins og hefðarfrú,
ég held sé best hún standi.“
Heimild: Visir.is