Vegagerðin óskar eftir tilboðum í smíði nýrrar brúar á Bjarnarfjarðará á Strandavegi í Strandasýslu.
Brúin er 140 m vestan núverandi brúar á Bjarnarfjarðará. Brúin verður 50 m löng steypt eftirspennt bitabrú í tveimur höfum 25 m löngum. Hún verður með 8,0 m breiðri akbraut og 0,5 m breiðum bríkum. Heildarbreidd brúarinnar er 9,0 m.
Helstu magntölur eru:
- Rofvörn 500 m2
- Gröftur 925 m3
- Fylling við steypt mannvirki 3.500 m3
- Skurður niðurrekstrarstaura 66 stk.
- Mótafletir 1.572 m2
- Steypustyrktarjárn 53.370 kg
- Spennt járnalögn 9.986 kg
- Steypa 604 m3
- Vegrið á brú 102 m
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. júlí 2018.
Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með 28. ágúst 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. september 2017 og verða þau opnuð þar 14:15 þann dag.