Home Fréttir Í fréttum Ekki öruggt að frekari rannsóknir hefðu dregið úr áhættu við framkvæmdir Vaðlaheiðaganga

Ekki öruggt að frekari rannsóknir hefðu dregið úr áhættu við framkvæmdir Vaðlaheiðaganga

69
0
Mynd: Vísir/auðunn

Talsverðar tafir hafa orðið á gerð Vaðlaheiðaganga en í apríl síðastliðnum var samþykkt að verja allt að 4,7 milljörðum króna í verkið og ljúka því þar með. Þá var einnig ákveðið að gera úttekt á framkvæmdinni meðal annars til að kanna ástæður þess að kostnaður hefur verið fram úr áætlunum.

<>

Niðurstöður úttektarskýrslu sýna fram á að erfitt sé að fullyrða hvort að frekari rannsóknir hefðu komið í veg fyrir áföll á borð við langvarandi jarðhita, innstreymis heits vatns og stórt hrun. Þá hefðu frekari rannsóknir ekki endilega getað dregið úr framkvæmdaáhættu.

Þá megi vissulega spyrja þeirrar spurningar hvort að almennt þurfi að leggja meira í undirbúningsrannsóknir fyrir gangagerð en hins vegar fylgi framkvæmdum sem þessum yfirleitt óvissa.

Þá er talið að þær jarðfræðirannsóknir sem gerðar voru hafi verið í samræmi við það sem tíðkast hefur verið við undirbúningur jarðganga. Þá hafi verið gerðar fleiri kjarnaboranir í rannsóknarskyni en almennt sé gert.

Óvissa um umferðarþróun og greiðsluvilja
Talið er að aukin umferð um Víkurskarð, eða um 50 prósent, muni hafa jákvæð áhrif á rekstrarhorfur og munu vega á móti auknum kostnaði við verkið. Þá verði lán ríkisins innheimt innan skynsamlegra marka.

Vitnað er til þess að nokkrar líkur séu á fullri endurgreiðslu þó hún gæti tekið lengri tíma en upphaflega var áætlað.
Þá er ljóst að gjaldskrá ganganna verði talsvert hærri en í Hvalfjarðargöngunum. Þá skipti vegastytting ganganna einnig miklu máli hvað varðar greiðsluvilja fólks en tekið er fram að vegastytting af göngunum sé tiltölulega lítil. Því sé nokkur óvissa um umferðarþróun og greiðsluvilja.
Talin ríkisframkvæmd
Þá teljast framkvæmdirnar ekki til eiginlegra einkaframkvæmda, þó svo upphaflega hafi verð lagt upp með það, heldur ríkisframkvæmd.

Ef um einkaframkvæmd hefði verið að ræða hefði verkefnið ekki þurft að lúta forgangsröðun samgönguáætlunar. Ríkið hefur því borið megináhættu af gerð ganganna hvað varðar fjármagn.
Lagt er áherslu á að ríkið verði áfram í góðu samstarfi við Vaðlaheiðagöng hf.

Heimild: Visir.is